Fyrirtækið
|
Nafn: Fæðingardagur: Fæðingarstaður:
Vinnuveitandi:
Tölvupóstfang: |
|
Haraldur Sigþórsson 25.09.1961 Reykjavík, Ísland
Háskólinn í Reykjavík Menntavegur 1, Nauthólsvík 101 Reykjavík Ísland
|
|
CURRICULUM VITAE
Bakgrunnur og fagsvið:
Dr. Haraldur Sigþórsson vinnur sem lektor hjá Háskólanum í Reykjavík í hálfu starfi og stundar auk þess sjálfstæða ráðgjöf gegnum fyrirtæki sitt, VHS. Hann hefur yfir 20 ára reynslu í rannsóknum og vinnu við umferðar-, skipulags- og samgöngumál. Hefur á þessum tíma fengist við flesta þætti umferðarmála vega og flugvalla, svo sem flæði, hönnun, rýmd, kostnaðargreiningu, arðsemi, áætlanir, hermun, hljóðvist, o.s.frv., auk þess að hafa stýrt mörgum af stærri verkefnum á þessu sviði á landinu. Hans helsta sérsvið er umferðaröryggi.
Samantekt á reynslu:
Reynsla af verkefnum tengdum samgöngum og stjórnun þeirra er mjög mikil. Fengist hefur við nær öll svið umferðaröryggismála, flest svið umferðarmála og ýmis svið flugmála og skipulagsmála. Hefur unnið að áætlanagerð og mannvirkjagerð fyrir Línuhönnun, Eflu, Vegagerðina og á sinni tíð fyrir Borgarverkfræðing. Hefur tengst ákvarðanatöku um nýja vegi, mislæg gatnamót, arðsemisgreiningu, forgangsröðun o.fl. Hefur auk þess verið fyrirlesari á ýmsum ráðstefnum, námskeiðum og fundum.
Starfsferill, yfirlit:
2009- Lektor við Háskólann í Reykjavík.
2006-2009: Aðjúnkt við Háskólann í Reykjavík og verkefnastjóri hjá Línuhönnun (Efla).
1998-2006: Sviðsstjóri hjá Línuhönnun.
1996-1998: Engineer at the Land Transport Safety Authority, Wellington New Zealand.
1992-1996: Deildarverkfræðingur hjÁ Borgarverkfræðingnum í Reykjavík.
1989-1991: Rannsóknarstörf við Institut für Verkehrswesen í Karlsruhe Þýskalandi.
Starfsferill:
2009- Lektor við Háskólann í Reykjavík. Með eigið fyrirtæki, VHS ehf. Er verkefnisstjóri yfir nokkrum rannsóknarverkum, t.d. áhrifum gufu frá Hellisheiðarvirkjun á umferðaröryggi á Suðurlandsvegi, úttekt á reglum um vegbúnað, hönnun skiptisvæða milli vegtegunda þjóðvega, umferðarmenninguog arðsemi. Stýrði enn fremur forverkefninu: Foundations in Permafrost Areas á vegum Northern Periphery Programme Evrópusambandsins og forverkefni á vegum Tækniþróunarsjóðs Rannís til að skoða gagnvirkar vegstikur. Er tengdur nokkrum nýsköpunarfyrirtækjum, t,d, FiRe ehf, sem vinnur að gerð hulsu og raförrvun til að efla fingragreyfingar lamaðra. Gerði viðskipta- og rekstraráætlun um miðstöð fyrir hreyfihamlaða fyrir Sjálfsbjörgu. Vinnur nú við að stýra gerð skýrslu um framtíð innanlandsflugs fyrir ISAVIA.
2006-2009 Í 75% stöðu hjá Línuhönnun (frá 2008 hjá Eflu) og 25% stöðu við Háskólann í Reykjavík. Samdi m.a. leiðbeiningar um umferðaröryggi fyrir Samgönguráðuneytið. Hefur umsjón með gerð reiknilíkana fyrir Reykjanesbæ og Akureyri. Er umferðarráðgjafi Garðabæjar og stofnaði og rekur net verkfræðistofa á norðurslóðum, NINE. Meðhöfundur skýrslu um stöðugleika og frágang á farmi. Tók þátt í að semja leiðbeiningarit Vegagerðarinnar um 2+1 vegi og hringtorg. Hefur stýrt nokkrum verkefnum með styrk hjá Nýsköpunarsjóði námsmanna og var m.a. leiðbeinandi nemenda, sem hlutu nýsköpunarverðlaunin árið 2008. Kennir námskeið á meistarastigi um umferðarskipulag, umferðartækni og umferðaröryggi. Er í norrænni nefnd NVF 52 um umferðaröryggismál.
1998-2006: Sviðsstjóri umferðar- og skipulagssviðs Línuhönnunar, sem hann bjó til frá grunni og var með 7 starfsmenn í lok tímabilsins. Hefur því haft umsjón með fjölmörgum verkum á sviði umferðar-, skipulags- og samgöngumála. Hafði m.a. umsjón með hermun (simulation) Kristnihátíðar á Þingvöllum og rýmingaráætlun vegna Kötlugosa. Var ráðgjafi Samvinnunefndar um svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins um málefni flugvallarins í Reykjavik og stýrði þar vinnu tveggja erlendra ráðgefandi fyrirtækja. Hefur auk þess formlegt leyfi Skipulagsstofnunar til að vinna að skipulagsgerð. Var ráðgjafi fyrir Slysavarnarráð vegna úrvinnsluþáttar Slysaskrár Íslands. Var ráðgjafi Rannsóknarnefndar umferðarslysa. Hefur verið matsmaður í nokkrum dómsmálum um umferðarslys.
1996-1998: Verkfræðingur hjá Land Transport Safety Authority í Wellington á Nýja Sjálandi. Vann við að sameina nýsjálenska og ástralska staðalinn um götulýsingu og skrifaði m.a. greinargerð um það, hvernig endurmeta mætti mörk fyrir lýsingarparametra. Skrifaði árlegar District Safety Reports 1997 fyrir New Plymouth, Stratford, South Taranaki, Wanganui og Ruapehu. Var ráðgjafi um úthlutun vísindastyrkja á sviði umferðarmála.
1992 – 1996: Deildarverkfræðingur hjá Umferðardeild borgarverkfræðings í Reykjavík. Sá um forhönnun fjölda umferðarmannvirkja bæði smárra og stórra. Var um tíma ritari þáverandi Umferðarnefndar Reykjavíkur og undirbjó mörg mál fyrir fundi. Var einnig varafulltrúi Reykjavíkurborgar í Umferðarráði. Skrifaði fyrstu Umferðaröryggisáætlun fyrir Reykjavík.
1989-1992: Vann við rannsóknir hjá Institut für Verkehrswesen í Karlsruhe í Þýskalandi. Var meðhöfundur að skýrslu um umferðaröryggi mismunandi þversniða vega. Skrifaði einnig skýrslu um val milli tveggja valkosta í gatnakerfi Erlangen í Þýskalandi.
Menntun:
• Stúdentspróf frá Menntaskólanum í Reykjavík, 1981
• BSc próf í byggingarverkfræði frá Háskóla Íslands, 1985
• Dipl.-Ing. frá háskólanum í Karlsruhe, Þýskalandi, 1989
• Dr.-Ing. frá háskólanum í Karlsruhe, Þýskalandi, 1993
Tungumálakunnátta:
Íslenska, þýska, enska og danska
Félagaaðild:
· Formaður húsfélags SEM samtakanna frá 2010
· Í stjórn H-SEM, samtökum endurhæfðra mænuskaðaðra frá 2004
· Í stjórn Leiðar, áhugamannafélags um bættar samgöngur til 2010
· Gjaldkeri Krafts, samtaka ungs fólks með krabbamein, 2001-2003
Hæfni og reynsla
Umsækjandi hefur doktorsgráðu í verkfræði á samgöngusviði frá Þýskalandi. Hefur einnig víðtæka reynslu af stjórnun og rekstri. Var um margra ára skeið sviðsstjóri umferðar- og skipulagssviðs Línuhönnunar með mest sjö manns í vinnu. Hluti starfsins fólst í því að sjá um starfsmennina, afla verkefna og stýra verkum. Hefur mikla reynslu sem verkefnastjóri og ráðgjafi. Einnig í að halda fyrirlestra, skrifa skýrslur og miðla upplýsingum til annarra. Viðbótarreynsla á þessu sviði hefur áunnist í gegnum kennslu við Háskólann í Reykjavík í meistaranámi og uppbyggingu sérstakrar námsbrautar á sérsviði umsækjanda. Fékk nýverið framgang sem lektor og hefur nú þó nokkra reynslu af kennslu. Hefur einnig tekið þátt í að gera fjölda áætlana fyrir ýmsa verkkaupa og ber t.d. að nefna, að umsækjandi samdi fyrstu umferðaröryggisáætlunina fyrir Ísland í samvinnu við Þórhall Ólafsson, núverandi yfirmann Neyðarlínunnar, og einnig fyrstu umferðaröryggisáætlunina fyrir Reykjavík í samvinnu við ýmsa pólitíska aðila. Þá stýrði hann faglegri úttekt á Reykjavíkurflugvelli fyrir kosningarnar árið 2000. Mikið hefur reynt á samskiptahæfni í gegnum fyrri störf umsækjanda þar sem vinna hans hefur verið óvenju fjölbreytt og er auk þess yfirleitt unnin í vinnuhópum. Frumkvæði umsækjanda kemur meðal annars skýrt fram í fjölda nýsköpunarverka sem hann hefur tengst, t.d. í gegnum Nýsköpunarsjóð námsmanna, en hann var meðal annars leiðbeinandi í verkefni sem fékk forsetaverðlaun. Hann er í nefnd NVF 52 um umferðaröryggi.
Umsækjandi hefur komið að uppbyggingu, hönnun og viðhaldi samgöngumannvirkja í gegnum starf sitt og hefur t.d. orðið þekktur fyrir að kynna svokallaða 2+1 vegi á Íslandi og eiga þátt í að gera leiðbeiningarrit fyrir Vegagerðina um það efni sem önnur, auk þess að hafa unnið fjöldann allan af rannsóknarverkefnum á sviði samgöngumála.
Umsækjandi samdi skýrslu fyrir Samgönguráðuneytið fyrir nokkru um umferðaröryggi vegakerfa, sem innihélt nýjustu hugmyndir Evrópusambandsins um fyrirkomulag umferðaöryggismála og var m.a. notað við gerð samgönguáætlunar. Þá hefur hann m.a. stýrt gerð skýrslu um stöðuleika og frágang á farmi, sem Umferðarstofa og Samgönguráðuneytið áttu veg og vanda að. Annars hafa verkkaupar aðallega verið Vegagerðin, sveitarfélög og flugmálayfirvöld.
Umferðaröryggi er aðalsérsvið umsækjanda og hefur hann víða komið að stefnumótun og áætlanagerð þessa málaflokks. Hann var til að mynda fyrsti starfsmaður Rannsóknarnefndar umferðaslysa og hefur unnið sem ráðgjafi fyrir nefndina allt frá stofnun hennar. Hefur unnið með kostnað vegna umferðarslysa og arðsemisgreiningar. Í fyrrnefndri skýrslu um umferðaröryggi vegakerfa, umferðar-öryggisáætlunum og nokkrum öðrum rannsóknarverkefnum, t.d. um vegbúnað, komst umsækjandi í tengsl við lög og reglugerðir okkar og Evrópusambandsins. Í því sambandi má ennfremur nefna vinnu hans hjá Umferðaröryggisstofnun Nýja Sjálands, m.a. við að sameina ástralska og nýsjálenska staðalinn um veglýsingu.
Umsækjandi hefur reynslu af fjármálaumsýslu og starfsmannahaldi í gegnum störf sín. Þá var hann um tíma gjaldkeri Krafts, samtaka ungs fólks með krabbamein, og er nú formaður húsnæðisfélags SEM samtakanna, sem rekur nú 31 íbúð.
