• Fyrirtækið

VHS

Verkfræðistofa Haralds Sigþórssonar

Aðallisti
  • Heim
  • Fyrirtækið
  • Verkefni
Home Fyrirtækið

Fyrirtækið

PostDateIconMánudagur, 11. ágúst 2008 06:00 | PostAuthorIconSkrifað af: Administrator | Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

CURRICULUM VITAE



 

Nafn:

Fæðingardagur:

Fæðingarstaður:

 

Vinnuveitandi:

 

 

 

 

Tölvupóstfang:

 

 

Haraldur Sigþórsson

25.09.1961

Reykjavík, Ísland

 

Háskólinn í Reykjavík

Höfðabakka 9

110 Reykjavík

Ísland

 

Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

  

 


















Bakgrunnur og fagsvið:        

Dr. Haraldur Sigþórsson vinnur sem lektor hjá Háskólanum í Reykjavík í hálfu starfi og stundar auk þess sjálfstæða ráðgjöf gegnum fyrirtæki sitt, VHS.  Hann hefur yfir 20 ára reynslu í rannsóknum og vinnu við umferðar-, skipulags- og samgöngumál.  Hefur á þessum tíma fengist við flesta þætti umferðarmála vega og flugvalla, svo sem flæði, hönnun, rýmd, kostnaðargreiningu, arðsemi, áætlanir, hermun, hljóðvist, o.s.frv., auk þess að hafa stýrt mörgum af stærri verkefnum á þessu sviði á landinu.  Hans helsta sérsvið er umferðaröryggi.

Samantekt á reynslu:           

Reynsla af verkefnum tengdum samgöngum og stjórnun þeirra er mjög mikil.  Fengist hefur við nær öll svið umferðaröryggismála, flest svið umferðarmála og ýmis svið flugmála og skipulagsmála.  Hefur unnið að áætlanagerð og mannvirkjagerð fyrir Línuhönnun, Eflu, Vegagerðina og á sinni tíð fyrir Borgarverkfræðing.   Hefur tengst ákvarðanatöku um nýja vegi, mislæg gatnamót, arðsemisgreiningu, forgangsröðun o.fl.  Hefur auk þess verið fyrirlesari á ýmsum ráðstefnum, námskeiðum og fundum.

Starfsferill:

2009-      Lektor við Háskólann í Reykjavík.  Með eigið fyrirtæki, VHS ehf.  Er verkefnisstjóri yfir nokkrum rannsóknarverkum, t.d. áhrifum gufu frá Hellisheiðarvirkjun á umferðaröryggi á Suðurlandsvegi, úttekt á reglum um vegbúnað og hönnun skiptisvæða milli vegtegunda þjóðvega.  Stýrir enn fremur forverkefninu:  Foundations in Permafrost Areas á vegum Northern Periphery Programme Evrópusambandsins.  Er einnig með forverkefni á vegum Tækniþróunarsjóðs Rannís til að skoða gagnvirkar vegstikur.

2006-2009  Í 75% stöðu hjá Línuhönnun (frá 2008 hjá Eflu) og 25% stöðu við Háskólann í Reykjavík.  Samdi m.a. leiðbeiningar um umferðaröryggi fyrir Samgönguráðuneytið.  Hefur umsjón með gerð reiknilíkana fyrir Reykjanesbæ og Akureyri.  Er umferðarráðgjafi Garðabæjar og stofnaði og rekur net verkfræðistofa á norðurslóðum, NINE.  Meðhöfundur skýrslu um stöðugleika og frágang á farmi.  Tók þátt í að semja leiðbeiningarit Vegagerðarinnar um 2+1 vegi og hringtorg.  Hefur stýrt nokkrum verkefnum með styrk hjá Nýsköpunarsjóði námsmanna og var m.a. leiðbeinandi nemenda, sem hlutu nýsköpunarverðlaunin árið 2008. Kennir námskeið á meistarastigi um umferðarskipulag, umferðartækni og umferðaröryggi.  Er í norrænni nefnd NVF 52 um umferðaröryggismál.

1998-2006:  Sviðsstjóri umferðar- og skipulagssviðs Línuhönnunar, sem hann bjó til frá grunni og var með 7 starfsmenn í lok tímabilsins.  Hefur því haft umsjón með fjölmörgum verkum á sviði umferðar-, skipulags- og samgöngumála.  Hafði m.a. umsjón með hermun (simulation) Kristnihátíðar á Þingvöllum og rýmingaráætlun vegna Kötlugosa. Var ráðgjafi Samvinnunefndar um svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins um málefni flugvallarins í Reykjavik og stýrði þar vinnu tveggja erlendra ráðgefandi fyrirtækja.  Hefur auk þess formlegt leyfi Skipulagsstofnunar til að vinna að skipulagsgerð.  Var ráðgjafi fyrir Slysavarnarráð vegna úrvinnsluþáttar Slysaskrár Íslands.  Var ráðgjafi Rannsóknarnefndar umferðarslysa.  Hefur verið matsmaður í nokkrum dómsmálum um umferðarslys.

1996-1998:  Verkfræðingur hjá Land Transport Safety Authority í Wellington á Nýja Sjálandi.  Vann við að sameina nýsjálenska og ástralska staðalinn um götulýsingu og skrifaði m.a. greinargerð um það, hvernig endurmeta mætti mörk fyrir lýsingarparametra.  Skrifaði árlegar District Safety Reports 1997 fyrir New Plymouth, Stratford, South Taranaki, Wanganui og Ruapehu.  Var ráðgjafi um úthlutun vísindastyrkja á sviði umferðarmála.

1992 – 1996:  Deildarverkfræðingur hjá Umferðardeild borgarverkfræðings í Reykjavík.  Sá um forhönnun fjölda umferðarmannvirkja bæði smárra og stórra.   Var um tíma ritari þáverandi Umferðarnefndar Reykjavíkur og undirbjó mörg mál fyrir fundi.  Var einnig varafulltrúi Reykjavíkurborgar í Umferðarráði.  Skrifaði fyrstu Umferðaröryggisáætlun fyrir Reykjavík.

1989-1992:  Vann við rannsóknir hjá Institut für Verkehrswesen í Karlsruhe í Þýskalandi.  Var meðhöfundur að skýrslu um umferðaröryggi mismunandi þversniða vega.  Skrifaði einnig skýrslu um val milli tveggja valkosta í gatnakerfi Erlangen í Þýskalandi.

Menntun:

• Stúdentspróf frá Menntaskólanum í Reykjavík, 1981

• BSc próf í byggingarverkfræði frá Háskóla Íslands, 1985

• Dipl.-Ing. frá háskólanum í Karlsruhe, Þýskalandi, 1989

• Dr.-Ing. frá háskólanum í Karlsruhe, Þýskalandi, 1993   

Tungumálakunnátta:

  Íslenska, þýska, enska og danska

Félagaaðild:

·  Í stjórn H-SEM, samtökum endurhæfðra mænuskaðaðra frá 2004

·  Í stjórn Leiðar, áhugamannafélags um bættar samgöngur til 2010

·  Gjaldkeri Krafts, samtök ungs fólks með krabbamein og aðstendenda þeirra, 2001-2003


 

RITASKRÁ SÍÐUSTU 5 ÁRA, 2005-2009:

 

1.              Vindur og umferðaröryggi, rannsóknarverkefni fyrir RANNUM, í tveimur hlutum, september 2004 og desember 2005.

 

2.              1+1, 2+1 og 2+2 vegir, Suðurlandsvegur til Selfoss og Vesturlandsvegur til Borgarness, skýrsla fyrir Vegagerðina, janúar 2005.

 

3.              2+1 vegir, grein í Tæknivísi, vor 2005.

 

4.              2+1 vegir, grein í Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar 2005.

 

5.             Regional Scale Assessment of the Natural Hazard Potential for Road No 76 from Siglufjörður to Straumnes, skýrsla fyrir alpS Kplus Zentrum Austurríki, Vegagerðina og Ofanflóðasjóð, mars 2005.

 

6.              Gagnsleysi umferðaráróðurs, grein í Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar, júlí 2005.

 

7.              Gjábakkavegur, samanburður leiða m.t.t. umferðaröryggis, júlí 2005.

 

8.              Hringtorg á Íslandi, leiðbeiningarit Vegagerðarinnar og kynning á ráðstefnu Vegagerðarinnar, nóvember 2005.

 

9.              Rýmingaráætlun Kötlu, skýrsla fyrir Almannavarnardeild Ríkislögreglustjóra og grein í Vörustjórnunarblaðið, desember 2005.

 

10.       GIS und Sicherheitsmanagement, bók, meðhöfundur kafla 15. GIS-based regional scale assessment of the natural hazard potential for roads – case study road no 76 from Straumnes to Siglufjörður, Iceland, Þýskaland 2006.

 

11.       Hægri réttur eða biðskylda, öryggi í Garðabæ, janúar 2006.

 

12.       Hljóðvist við Keflavíkurflugvöll, skýrsla fyrir Flugvallarstjórann á Keflavíkurflugvelli og Reykjanesbæ, febrúar 2006 + síðari viðbætur.

 

13.       Vestfjarðavegur um Gufudalssveit, umferðaröryggi tveggja leiða, apríl 2006.

 

14.       Lýsing þjóðvega, grein í Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar, apríl 2006.

 

15.       Kostnaður umferðarslysa eftir alvarleika, rannsóknarverkefni fyrir RANNUM, maí 2006.

 

16.       Umferðaröryggi vegakerfa, stefnumótandi greinargerð fyrir Samgönguráðuneytið, ágúst 2006.

 

17.       Enn um umferð, grein í Árbók VFÍ, sept. 2006.

 

18.       Hönnun 2+1 vega, leiðbeiningarit Vegagerðarinnar, nóv. 2006.

 

19.       Óhappa- og slysatíðni eftir gerð vegar, rannsóknarsjóður Vegagerðarinnar apríl 2007.

 

20.       Öryggi gangandi vegfarenda í Reykjavík, sept. 2007.

 

21.       Frágangur og stöðugleiki farms, unnið fyrir Umferðarstofu, október 2007.

 

22.       Umhverfi vega, unnið fyrir Vegagerðina, nóv. 2007.

 

23.       Notkun negldra hjólbarða, hvert ber að stefna, grein í Tæknivísi, 2007.

 

24.       Óhappatíðni í beygjum og langhalla, skýrsla fyrir rannsóknarsjóð Vegagerðarinnar, des. 2007.

 

25.       Leiðbeinandi fyrir Nýsköpunarsjóðsverkefnin:  Hringtorg, séríslensk regla ,  Bestun götulýsingar á norðurslóðum og Rafskautanet fyrir fingraendurhæfi,  2007.

 

26.       Leiðbeinandi fyrir Nýsköpunarsjóðverkefnin:  Áhrif stöðvunarskyldu á umferðaröryggi og Gagnvirk vegstika, 2008.

 

27.       Óhappatíðni eftir vegbreidd og slitlagsbreidd, des. 2008.

 

28.       Umferðaröryggi í Reykjavík, grein í Árbók VFÍ, des. 2008.

 

29.       Umferðarreiknilíkan Reykjanesbæjar, des. 2008.

 

30.       Óhappatíðni eftir langhalla, júní  2009.

 

31.       Umhverfisáhrif lýsingar, júlí 2009.

 

32.       Öryggi gatnamóta innan hverfa, stöðvunarskylda,  ágúst 2009.

 

33.       Leiðbeinandi fyrir Nýsköpunarsjóðsverkefnin:  Þvottabretti á malarvegum og hitanæmt glitmerki, 2009.

 

 

 






















        

 

Síðast uppfært (Mánudagur, 29. mars 2010 00:53)

 

Copyright © 2009 ---.
All Rights Reserved.

Designed by VivoCiti.com.